Fyrsta húsið rís á Freyjugötureit
feykir.is
Skagafjörður, Lokað efni
10.02.2021
kl. 14.22
Meðfylgjandi mynd var tekin í gær en vinna er hafin við fyrsta húsið á svokölluðum Freyjugötureit á Sauðárkróki og fellur undir reglur Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um húsnæðissjálfseignarstofnanir. Áætlað er að um 60 íbúðir muni verða til næstu árin ýmist til sölu eða leigu. Aðrar myndir eru fengnar frá Hrafnshóli og áréttað skal að um kynningarmyndir eru að ræða og getur því endanlegt útlit orðið aðeins frábrugðið.
Hafin er vinna við uppbyggingu fjölbýlishúss við Freyjugötu á Sauðárkróki, hið fyrsta af mörgum ef fram fer sem horfir með uppbyggingu verktakafyrirtækisins Hrafnshóls á svokölluðum Freyjugötureit. Sveitarfélagið Skagafjörður sótti um og fékk á síðasta ári úthlutað stofnframlagi f.h. húsnæðissjálfseignarstofnunar sem komið hefur verið á laggirnar, Bæjartún hses, vegna átta íbúða við Freyjugötu á Sauðárkróki en um er að ræða íbúðir fyrir fjölskyldur og einstaklinga sem eru undir tekju- og eignamörkum. Nýjatún ehf., sem er í eigu Hrafnshóls, er stofnandi Bæjartúns og tekur yfir öll réttindi og skyldur sveitarfélagsins gagnvart Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.