SSNV óskar eftir ábendingum um menningarhús á Norðurlandi vestra

MYND AF VEF STJÓRNARRÁÐSINS
MYND AF VEF STJÓRNARRÁÐSINS

Á heimasíðu SSNV segir að Í öllum sveitarfélögum, utan höfuðborgarsvæðisins, fer nú fram vinna við að safna gögnum um húsnæði eða staði þar sem fram fer menningar- og/eða listtengd starfsemi. Er þetta hluti af aðgerðaáætlun byggðaáætlunar og er markmið þessarar vinnu m.a. að efla menningarstarfsemi í byggðum landsins, í takt við meginmarkmið byggðaáætlunar sem er að jafna tækifæri allra landsmanna til atvinnu og þjónustu, jafna lífskjör og stuðla að sjálfbærri þróun byggðarlaga um land allt.

Ef þú veist um húsnæði í landshlutanum okkar, eða staði þar sem fram fer menningarstarfsemi eða einhvers konar listtengd starfsemi, biðjum við þig um að senda ábendingu til Berglindar hjá SSNV – berglind@ssnv.is

Viðkomandi húsnæði þarf hvorki að vera í eigu sveitarfélags né hluti af stofnun, aðeins að þar fari fram einhver listtengd starfsemi eða viðburðir.

Brýnt er að allar ábendingar berist fyrir 7. janúar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir