Hagvöxtur landshluta 2003-2008
Skýrsla um Hagvöxt landshluta hefur nú verið birt á vef Byggðastofnunar en það er í fjórða sinn sem það er gert. Að þessu sinni er fjallað um árin 2003-2008. Hagvöxtur var neikvæður á tímabilinu.
Skýrslan er unnin af Dr. Sigurði Jóhannessyni hjá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands fyrir Byggðastofnun og í samvinnu við starfsmenn stofnunarinnar. Í skýrslunni eru tölur fyrir árið 2007 reiknaðar eins og áður en tölur fyrir árið 2008 áætlaðar.
Meginniðurstöður eru þær að hagvöxtur á landinu öllu var 6-7% á árunum 2004 til 2007, en stóð nær í stað á árinu 2008. Áhrif bankahrunsins gætir því ekki að fullu það ár og er líklegt að áhrif þess hafi ekki komið fram af fullum þunga fyrr en á árinu 2009. Hagvexti á tímabilinu er eins og áður mjög misskipt. Þannig var hagvöxtur á tímabilinu 2004-2008 41% og 44% á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum á meðan hann var 31% á Austurlandi, í kringum 20% á Suður- og Vesturlandi, nær enginn á Vestfjörðum og neikvæður á Norðurlandi eystra og Norðurlandi vestra.
Skýrsluna í heild má lesa HÉR.
/Byggðastofnun
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.