Gleðiganga Árskóla
feykir.is
Skagafjörður
28.05.2010
kl. 08.00
Hin árlega Gleðiganga Árskóla verður farin mánudaginn 31.maí frá Árskóla við Skagfirðingabraut klukkan 10:00. Gengið verður sem leið liggur upp að Sjúkrahúsi og þar verður skólasöngurinn sunginn.
Þá er haldið niður á Skagfirðingabraut og gengið að Ráðhúsinu og niður að Árskóla við Freyjugötu þar sem grillað verður ofan í mannskapinn. Reiknað er með að skóla ljúki þennan dag klukkan 12:00. Vilja skólastjórnendur nota tækifærið og bjóða alla bæjarbúa velkomna til að taka þátt í göngunni og gera sér glaðan dag í góðum félagsskap
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.