Vormót Tindastóls í júdó fór fram á Sauðárkróki á kjördag
Keppendur frá KA á Akureyri, Júdófélagi Reykjavíkur og Júdódeild Ármanns í Reykjavík og Júdódeild Tindastóls á Sauðárkróki, Hólum, Hofsósi og Varmahlíð öttu kappi í júdó á Vormóti Tindastóls sem haldið var í íþróttahúsinu á Sauðárkróki á laugardaginn.
Á heimasíðu Tindastóls kemur fram að 42 keppendur hafi verið skráðir til leiks, 22 stelpur og 20 strákar, og þar af voru 26 að keppa fyrir Júdódeild Tindastóls. Þetta er í fjórða sinn á jafn mörgum árum sem Vormótið er haldið hér á Sauðárkróki og markar það lok vorannar hjá Júdódeild Tindastóls.
Mótið er opið öllum 14 ára og yngri og hefst það að venju á klukkutíma æfingu allra keppenda þar sem vel er hitað upp og teknar léttar glímur inn á milli júdóleikja. Eftir æfingu er keppendum skipt í flokka áður en mótið sjálft er sett af stað. Eftir mót er öllum keppendum og fylgdarliði boðið upp á grillað KS lambakjöt og meðlæti og þannig tryggt að allir fari vel saddir heim á leið.
"Margar skemmtilegar viðureignir mátti sjá á júdógólfinu í dag og allir keppendur stóðu sig vel, sýndu áræðni og baráttuhug þó að andstæðingurinn væri oft keppnisreyndari," skrifar Einar Örn Hreinsson, júdóþjálfari.
Úrslit mótsins og myndir má sjá á Tindastóll.is
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.