Unga fólkið hvatt til að þátttöku í verðlaunaafhendingu á Landsmóti í sumar!

Landsmót hestamanna sem haldið verður í Skagafirði dagana 27.  júní - 4. júlí hefur óskað eftir samstarfi við æskulýðsnefndir hestamannafélaga landsins í þeim tilgangi að virkja ungmenni og unglinga við verðlaunaafhendingu á mótinu.

Mælst er til að unga fólkið skarti félagsbúningi sínum við afhendinguna og geta áhugasamir haft samband við æskulýðsnefndir hestamannafélaganna en einnig er hægt að senda póst á  landsmot@landsmot.is.

Í póstinum þarf að koma fram nafn og aldur ásamt upplýsingum um hvaða hestamannafélagi viðkomandi tilheyrir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir