Tilkynning um framboð

Jónína Erna Arnardóttir
Jónína Erna Arnardóttir

Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í annað til þriðja sæti í prófkjöri Sjálfstæðismanna í NV-kjördæmi fyrir kosningarnar í haust. Ég hef undanfarin sex ár setið í sveitarstjórn Borgarbyggðar, komið þar að ýmsum málum sem snerta sveitarfélagið og öðlast talsverða reynslu. Auk þess hef ég gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn og sit nú í stjórn Sambands Íslenskra sveitarfélaga.

Þessi reynsla ætti að nýtast mér vel við störf á Alþingi og þau málefni sem ég vil leggja áherslu á eins og t.d. vegamál, en vegir innan kjördæmisins eru víða í slæmu ástandi og þarf að gera mun betur þar. Einnig þarf að hraða ljósleiðaravæðingu kjördæmisins og reyndar landsins alls. Mikilvægt er líka að hlúa að grunnþjónustu eins og heilbrigðisþjónustu og menntakerfinu. Ég tel að þetta og ótal margt annað getum við gert án þess að skattar séu í hæstu hæðum ef atvinnulíf fær að blómstra og þar með hagur allra. Ég hlakka til að hitta sem flesta á næstu vikum til að kynna mig og heyra hvað er kjósendum í kjördæminu efst í huga.

 

Jónína Erna Arnardóttir, Borgarnesi

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir