Þjónustustefna Húnaþings vestra

Laugarbakki. MYND Markaðsstofa Norðurlands.
Laugarbakki. MYND Markaðsstofa Norðurlands.

Á vef Húnaþings vestra kemur fram að nú standi yfir vinna við gerð þjónustustefnu Húnaþings vestra skv. 130. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Í stefnunni skal koma fram stefna sveitarstjórnar fyrir komandi ár og þrjú ár þar á eftir um það þjónustustig sem sveitarfélagið hyggst halda uppi í byggðum og byggðarlögum fjarri stærstu byggðakjörnum viðkomandi sveitarfélags. Í þeirri vinnu er mikilvæg að fá fram sjónarmið íbúa.

Því leitum við til íbúa um ábendingar um þá þjónustu sem veitt er í dreifbýli. Hægt er að skila inn ábendingum á rafrænu eyðublaði sem er að finna hér. Einnig má senda ábendingar á netfangið skrifstofa@hunathing.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir