Val á manni ársins 2024 í Austur-Húnavatnssýslu

mynd-huni.is
mynd-huni.is

Á vefsíðunni huni.is segir að líkt og undanfarin 19 ár býður Húnahornið lesendum sínum að velja mann ársins í Austur-Húnavatnssýslu. Húni biðlar til lesenda að senda inn tilnefningu í gegnum þar til gerðan rafrænan atkvæðaseðil. Hver og einn getur sent inn eina tilnefningu og er jafnframt óskað eftir ástæðu tilnefningarinnar. Maður ársins í Austur-Húnavatnssýslu getur verið einstaklingur eða hópur manna.

Allir lesendur Húnahornsins eru hvattir til að taka þátt í valinu - Smelltu hér.

Lesendur Húnahornsins völdu Karólínu Elísabetardóttur sem mann ársins í Austur-Húnavatnssýslu árið 2023 og var það í annað sinn sem hún hlaut nafnbótina. Karolína er athafnakona og bóndi í Hvammshlíð í Húnabyggð. Undir forystu hennar var hafin leit að erlendum rannsóknum sem sýna fram á lausnir gegn riðuveiki. Í kjölfarið var rannsóknarhópur stofnaður sem fann svo verndandi arfgen gegn riðu.

Þetta er í 20. sinn sem Húnahornið stendur fyrir vali á manni ársins í Austur-Húnavatnssýslu.

Valið stendur til miðnættis 23. janúar næstkomandi og verða úrslit kynnt degi síðar.

Menn ársins í Austur-Húnavatnssýslu síðustu ár eru þessir:

2023: Karólína Elísabetardóttir
2022: Bryndís Bragadóttir
2021: Karólína Elísabetardóttir
2020: Valdimar Guðmannsson
2019: Björgunarsveitarfólk í Björgunarfélaginu Blöndu
2018: Guðjón Ragnarsson og hundurinn Tinni
2017: Eyþór Franzon Wechner
2016: Skarphéðinn Húnfjörð Einarsson
2015: Róbert Daníel Jónsson
2014: Brynhildur Erla Jakobsdóttir
2013: Elín Ósk Gísladóttir
2012: Kári Kárason og Pétur Arnar Kárason
2011: Einar Óli Fossdal
2010: Bóthildur Halldórsdóttir.
2009: Bóthildur Halldórsdóttir.
2008: Lárus Ægir Guðmundsson.
2007: Rúnar Þór Njálsson.
2006: Lárus B. Jónsson.
2005: Lárus B. Jónsson.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir