Styrkir afhentir á morgun
Styrkir til atvinnureksturs kvenna til markaðssetningar erlendis á handverki og hönnun verða afhentir við formlega athöfn í Mýrinni í Kringlunni fimmtudaginn 18. mars nk. kl 14:00.
Þann dag verður opnuð sýning í Mýrinni á verkum þeirra hönnuða sem hljóta styrk að þessu sinni. Sýningin er liður í HönnunarMars sem stendur til sunnudagsins 21. mars.
Iðnaðarráðherra Katrín Júlíusdóttir mun flytja ávarp við athöfnina og styrkina afhenda Anna Kristín Gunnarsdóttir formaður stjórnar Byggðastofnunar og Hermann Ottósson forstöðumaður hjá Útflutningsráði Íslands.
Markmið með þessum styrkveitingum er að styðja við undirbúning og framkvæmd markaðsaðgerða erlendis á handverki og hönnunarvörum. Styrkjunum er ætlað að skapa aukin verðmæti og ný markaðstækifæri og eru liður í framkvæmd á aðgerð í Byggðaáætlun um stuðning við atvinnurekstur kvenna. Við mat á umsóknum var einkum horft til þess að varan væri vönduð og samkeppnishæf og að allar markaðs- og kostnaðaráætlanir væru raunhæfar og vel skilgreindar. Auglýst var eftir umsóknum fyrr í vetur og bárust alls 19 umsóknir. Rýnihópur sem skipaður var fulltrúum frá Byggðastofnun, Handverki og hönnun, Listaháskóla Íslands, Ímark og Nýsköpunarmiðstöð Íslands fór yfir umsóknirnar og gerði tillögu til dómnefndar sem tók endanlega ákvörðun um þau verkefni sem hljóta styrk. Dómnefnd var skipuð fulltrúum frá Byggðastofnun, Útflutningsráði og Hönnunarmiðstöð Íslands. Dómnefnd valdi fjögur verkefni sem hljóta fjárstyrk að upphæð 2 mkr hvort og að auki munu hönnuðir þeirra njóta leiðsagnar og ráðgjafar við að koma vörum sínum á markað erlendis“.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.