Snorri annar í nemakeppni
Snorri Stefánsson, bakaranemi hjá Sauðárkróksbakaríi, varð annar í árlegri Nemakeppni Kornax sem var haldin í 13. sinn dagana 17. og 18. mars í Hótel- og Matvælaskólanum í Kópavogi.
Markmiðið með keppninni er að efla faglegan metnað í bakaraiðn og hvetja bakaranema til nýsköpunar og til að temja sér öguð vinnubrögð. Keppnin hefur verið haldin árlega frá árinu 1998 og að henni standa Hótel- og matvælaskólinn í Kópavogi, Landssamband bakarameistara, Klúbbur bakarameistara og Kornax sem er aðalstuðningsaðili.
Þátttaka í nemakeppni Kornax 2010 var ein sú besta í mörg ár en 8. þátttakendur skráðu til leiks. Keppnin var mjög jöfn og spennandi Sigurvegarinn í ár er Rebekka Helen Karlsdóttir frá Brauða- og kökugerðinni Akranesi. Snorri Stefánsson, Sauðárkróksbakarí varð í 2. Sæti og Eiður Mar Júlíusson, Bakarameistaranum, í 3. Sæti.
Í verðlaun hlaut siguvegarinn eignarbikar frá Kornax ásamt ferðavinningi, frá Klúbbi bakarameistara farandbikar. Allir þátttakendur fengu viðurkenningarskjal frá Kornaxi, Landssamband bakarameistara gaf síðan öllum þátttakendum og dómurum rós.
Dómnefnd skipuðu Sigrún Guðjónsdóttir yfirdómari frá Kornaxi, Björgvin Richter frá Kökubankanum og Kristján Sigurmundsson frá Sveinsbakaríi.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.