Skagafjörður með í þjónustusvæði um málefni fatlaðra
Byggðarráð Skagafjarðar leggur til við sveitarstjórn að hún staðfesti þátttöku sveitarfélagsins i myndun þjónustusvæðis um málefni fatlaðra á Norðurlandi vestra.
Þann 1. janúar 2011 er áætlað að málefni fatlaðra færast frá ríki til sveitarfélaga samkvæmt samkomulagi þar um. Undirbúningur yfirfærslunnar hefur staðið um nokkurt skeið að hálfu ríkis og sveitarfélaga á vettvangi sérstakrar verkefnisstjórnar sem um málið fjallar. Samkvæmt samkomulaginu er gert ráð fyrir að mynduð verði sérstök þjónustusvæði milli þeirra sveitarfélaga sem ekki telja átta þúsund íbúa og skuli þjónustusvæðið samanlegt ekki telja færri íbúa en átta þúsund. Stjórn SSNV fjallaði um málið á fundi 9. mars sl. og leggur til að áfram verði rekið byggðasamlag um málaflokkinn á Norðurlandi vestra með dreifðri þjónustu. Fer stjórnin þess á leit við sveitarfélögin sem standa að byggðasamlagi um málefni fatlaðra á Norðurlandi vestra að þau staðfesti þátttöku í myndun þjónustusvæðis sem helgast af sveitarfélagsmörkum Bæjarhrepps, Húnaþings vestra, Húnavatnshrepps, Blönduósbæjar, Skagabyggðar, Sveitarfélagsins Skagastrandar, Sveitarfélagsins Skagafjarðar, Akrahrepps og Fjallabyggðar.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.