Sigurjón kjörinn formaður Frjálslynda flokksins
Króksarinn Sigurjón Þórðarson var í dag kjörinn formaður Frjálslynda flokksins á landsfundi flokksins en hann var einn í kjöri en Guðjón Arnar Kristjánsson gaf ekki kost á sér. Ásta Hafberg var kosin varaformaður en hún felldi Kolbrúnu Stefánsdóttur, sem hefur verið varaformaður. Þá var Grétar Mar Jónsson sjálfkjörinn í embætti ritara.
Fram kemur á heimasíðu Frjálslynda flokksins, að Sigurjón hefði í þakkarræðu sinni sagt, að ástæðan fyrir því að flokkurinn hefði ekki orðið stærri í gegnum tíðina vera fyrst og fremst vegna þess að hann hefði alltaf beitt sér gegn sterkum ósanngjörnum hagsmunum. Það þyrfti að taka rækilega til í íslenskum stjórnmálum og sagðist Sigurjón viss um að flokkurinn hefði sigur að lokum.
Frjálslyndi flokkurinn kom ekki manni á þing í kosningunum síðasta vor.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.