Sigmar Logi til Tindastóls

Sigmar Logo Björnsson

Sigmar Logi Björnsson, skrifaði í gærkvöldi undir samning við Tindastól, en hann hefur veirð búsettur í Kanada undanfarin ár en einnig leikið með Breiðablik hér á Íslandi.

Sigmar á rætur sínar að rekja í Skagafjörð, hann er sonur Björns Sigtryggssonar og Guðrúnar Erlu Sigmarsdóttur, en þau hafa verið búsett í Kanda síðustu árin. Björn gerði garðinn frægan með Tindastól á árunum 1988 - 1992 og lék þá 72 leiki með liðinu í úrvalsdeild.

Sigmar á 13 landsleiki með yngri landsliðum Íslands og er einn af efnilegri ungu leikmönnum landsins á sínum aldri, en hann er nýorðinn 19 ára gamall. Hann getur bæði spilað stöður leikstjórnanda og skotbakvarðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir