Opnun á nýjum sýningarsal með myndlistarsýningunni "Finding Waters"

Skagaströnd. Mynd: Skagaströnd.is

Nes listamiðstöð á Skagaströnd hefur nú tekið í notkun nýjan sýningarsal sem ber heitið Gamla Kaupfélagið, sem eins og nafnið bendir til er til húsa í nýuppgerðu húsi Kaupfélagsins á Skagaströnd. Efri hæð hússins hefur nú verið gerð að sýningarsal og fyrstir til að sýna þar er alþjóðlegi listamannahópurinn Distill sem stendur fyrir sýningunni "Finding Water."
    
 Hópurinn sem hefur sýnt saman á alþjóðlegum vettvangi frá árinu 1999 og er því tíu ára um þessar mundir hefur áður sýnt hér á landi í Listasafni Hafnarfjarðar Hafnarborg árið 2002 og Listasafni Reykjanesbæjar 2006. Distill smanstendur af Ann Chuchvara, Julie Poitras Santos og Tsehai Johnson frá Bandaríkunum, Jaeha Yoo frá Kóreo, Patricia Tinajero frá Ekvador og Hrafnhildi Sigurðardóttur.

Sýningin "Finding Water" opnar eins og fyrr segir þriðjudaginn 16. júní kl. 17-19 með gjörningi á Höfðanum kl. 18 og eru allir velkomnir. Hún stendur til sunnudagsins 5. júlí og er opin virka daga frá kl. 9-16 og eftir samkomulagi um helgar í síma 864 0053.
     Sýning Distill hópsins er stykt af Menningarráði Norðurlands vestra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir