Opinn fundur um málefni LH og LM
Landssamband hestamannafélaga og Landsmót ehf. óska eftir stuttum fundi með hestamönnum á Norðurlandi vegna verkefna sem þær stöllur, Guðný Ívarsdóttir og Hjörný Snorradóttir eru að vinna að sem lokaverkefni í HÍ. Þær hafa ásamt forsvarsmönnum LH og LM fundað í Reykjavík og á Suðurlandi og nú er komið að Norðurlandi.
Hádegisfundur verður haldinn í Ólafshúsi, miðvikudaginn 24. júní kl. 12:00
Fundirnir byggjast á gagnaöflun, þ.e. lagðir eru spurningalistar fyrir hestamenn og í kjölfarið fylgja stuttar umræður.
Þess má geta að Guðný mun í sínu verkefni kryfja hvort ástæða sé til að sameina félagasamtök í hestamennskunni út frá hagkvæmnissjónarmiðum og hvort vilji sé fyrir því. Einnig út frá hvaða forsendum menn eru með og á móti slíkri sameiningu.
Hjörný mun í sínu verkefni fjalla um hlutverk og markmið Landsmóta, framtíðarsýn og hvort ástæða sé til að gera breytingar á fyrirkomulaginu og þá hvaða.
Lítið er til um rannsóknarverkefni er lúta að ofangreindu og ljóst að niðurstöður verkefnanna eru Landssambandi hestamannafélaga og Landsmóti ehf. afar mikilvægar.
Fundurinn er opinn öllum er áhuga hafa á málefnum hestamanna og landsmóts.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.