Mikil stemning fyrir Kaldármelum
Nú styttist óðum í Fjórðungsmót á Kaldármelum, dagana 1. – 5. júlí. Mikil stemning virðist ríkja í hestamannafélögunum sem þátt taka og raunar langt út fyrir raðir þeirra. Hestamenn virðast ætla að fjölmenna á Kaldármela fyrstu vikuna í júlí.
Endanleg dagskrá liggur nú fyrir á heimasíðu FM: www.lhhestar.is/fm2009
Þar er einnig að finna frekari upplýsingar fyrir þátttakendur og gesti.
Um 350-370 hross á FM
Að mótinu standa hestamannafélögin fimm á Vesturlandi, þ.e. Dreyri, Faxi, Glaður, Snæfellingur og Skuggi. Félagar úr þessum hestamannafélögum hafa haft í nógu að snúast undanfarið en ,,allt er þetta að smella“ eins og einn þeirra komst að orði.
Mótstjóri er Baldur Björnsson, Múlakoti, úr hestamannafélaginu Faxa.
Í ár hefur verið bryddað uppá þeirri nýbreytni að stækka radíusinn hvað varðar þátttakendur á FM. Auk ofangreindra hestamannafélaga sem að mótinu standa, eru eftirfarandi félög þátttakendur á mótinu:
- Kjós: Adam
- Vestfirðir: Hending, Kinnskær og Stormur
- Siglufjörður: Glæsir
- Húnaþing vestra: Þytur
- Austur-Húnavatnssýsla: Neisti og Snarfari
- Skagafjörður: Stígandi, Léttfeti og Svaði
Þátttaka er mjög góð. Að sögn Bjarna Jónassonar, framkvæmdastjóra FM stefnir í 350-370 hross í keppni á Kaldármelum. Þess má geta að bæði tölt og skeið eru opin, þ.e. þátttaka er ekki einskorðuð við ofangreind hestamannafélög.
Í skeiði keppa um 25 hross og í töltinu eru þátttakendur um 35. Lokatöltlista er að finna á heimasíðu FM. Reikna má með um 75 þátttakendum alls í barna, unglinga og ungmennaflokki.
Mjög stór hópur kynbótahrossa náði lágmörkum eða rétt um eitt hundrað skv. hrossaræktarráðunauti og nú lítur svo út að um 86 kynbótahross verði sýnd á FM2009.
Beitarhólf verða fyrir hross á mótssvæðinu. Svæðið verður stikað upp og fólk þarf að koma með rafmagnsgirðingu sjálft. Nánari upplýsingar fyrir þátttakendur er að finna á heimasíðu FM.
Staðsetning FM 2009 er vel til þess fallin að koma ríðandi á Kaldármela, í nágrenninu eru frábærar reiðleiðir og vitað er af fjölda hópa sem eru að koma ríðandi bæði að sunnan og norðan á Fjórðungsmót.
Veðurguðirnir spila fyrir dansi og frændur þeirra lofa góðu veðri
Á fjölmennum hestamannamótum eru veitingar, gistiaðstaða og salernismál ávallt ofarlega í huga gesta og þátttakenda. Reynt verður að sinna þessum grunnþörfum gesta af bestu getu.
Að sögn Bjarna Jónassonar, framkvæmdastjóra er gistiaðstaða í grenndinni að fyllast en nægt pláss er á tjaldsvæðinu og er aðstaða á tjaldsvæði innifalin í miðaverði. Veitingar verða í höndum Hótel Eldborgar og Gæðakokka í Borgarnesi, lögð verður áhersla á heimilismat og grillmat. Nætursala veitinga verður starfrækt, ,, það fer enginn svangur að sofa“ segir Bjarni framkvæmdastjóri og er rokin af stað í frekari undirbúning.
Hinir ýmsu trúbadorar munu síðan troða upp í veitingatjaldi á kvöldin og munu hljómsveitirnar Matti og Draugabanarnir og Veðurguðirnir spila fyrir dansleiki á föstudags- og laugardagskvöld.
Án efa verður fjör og gaman úti í guðs grænni náttúrunni á Kaldármelum og hina Veðurguðina sem ekki eiga sess í hljómsveitinni er löngu búið að panta allan tímann!
Allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu FM: http://fm2009.lhhestar.is/
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.