Lína í dag og á morgun
10. bekkur Árskóla frumsýndi, fimmtudaginn 18. mars, barnaleikritið Lína langsokkur eftir Astrid Lindgren í leikstjórn Guðbrands Ægis Ásbjörnssonar. Allir kannast við hina óborganlegu Línu og uppátæki hennar á Sjónarhóli.
Allir nemendur 10. bekkjar koma að sýningunni, sumir sem leikarar, aðrir hafa hlutverk á bakvið tjöldin s.s. sviðsmenn, smiðir og miðasölufólk, nokkrir sjá um förðun, leikmuni, búninga og hárgreiðslu eða sinna tæknimálum og sjá um ljós og hljóð.
Allur ágóði af sýningunum rennur í ferðasjóð 10. bekkinga, en stefnt er á Danmerkur- og Svíþjóðarferð í vor.
Sýningar verða í Bifröst sem hér segir
(Miðapantanir í síma 453-5216 milli 14:00 og 17:00 en einnig er hægt að kaupa miða fram til 14:00 sýningardagana á skrifstofu Árskóla.
Mánudagur 22. mars kl. 17:00
Þriðjudagurinn 23. mars kl. 17:00 og 20:00
Miðaverð:
5 ára og yngri kr. 500,-
Grunnskólanemendur kr. 1000,-
Fullorðnir kr. 1500,-
Vinsamlegast athugið að ekki er tekið við greiðslukortum.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.