KS býður 600 milljónir til viðbyggingar Árskóla
Kaupfélag Skagfirðinga hefur boðist til þess að lána sveitarfélaginu Skagafirði allt að 600 milljónum króna vaxtalaust til tveggja ára eða þar til ástand skánar á fjármálamörkuðum. Fénu skal varið til byggingar
viðbyggingar við Árskóla.
Til er hönnun að viðbyggingu Árskóla upp á um 1300 fm en með byggingunni er gert ráð fyrir að færa alla kennslu grunnskólabarna á Sauðárkróki undir eitt þak en í dag er kennt á tveimur stöðum auk þess sem kennslustofur eru í tveimur sumarhúsum við skólann í Freyjugötu.
-Ég segi auðvitað bara já takk við nýjum skóla, segir Óskar Björnsson, skólastjóri. -Þetta hefur verið okkar baráttumál í áratugi og því hlýt ég að fagna öllum möguleikum sem snúa að því að klára hér nýja skólabyggingu, bætir Óskar við.
Málið var kynnt af fulltrúum Kaupfélagsins á fundi í Árskóla í gær auk þess sem fulltrúum meirihluta sveitarstjórnar hefur verði óformlega tilkynnt um boðið.Ekkert formlegt erindi eða boð hefur borist til sveitarfélagsins vegna
málsins.
-Við erum að sjálfsögðu afar þakklát fyrir gott boð og það er mikilvægt að eiga fyrirtæki í héraði sem er samfélagslega sinnað og vill taka þátt í uppbyggingu sveitarfélagsins með okkur með beinum hætti. Það er ómetanlegt og eitthvað sem margir öfunda okkur af. Við þurfum hins vegar varðandi allar framkvæmdir að fara vel yfir hvert bolmagn sveitarfélagsins er á hverjum tíma til stórra fjárfestinga. Við eigum alveg eftir að fara yfir málið á vettvangi sveitarstjórnar og framhaldi af því með Kaupfélagsmönnum, segir Guðmundur Guðlaugsson, sveitastjóri. -Í dag búa sveitarfélög við tekjuumhverfi þar sem tekjurnar minnka hratt samfara tekjuhruni hjá ríkissjóði og hér hjá okkur í raun langt umfram það sem atvinnuástand og staða fyrirtækja í sveitafélaginu ætti að gefa tilefni til. Til að geta farið út í fjárfestinar af þessu tagi þurfum við að ná verulegri hagræðingu í rekstri en mikil vinna stendur einmitt yfir hjá okkur í þeim efnum um þessar mundir, bætir Guðmundur við. Áhugi okkar stendur til þess að ná þeirri stöðu að mögulegt verði að hefja framkvæmdir við stækkun Árskóla eins fljótt og kostur er.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.