Héraðsmót á þjóðhátíðardaginn

Héraðsmót UMSS verður haldið í Sundlaug Sauðárkróks kl. 10:15 á þjóðhátíðardaginn 17. Júní.  Meðalannars verður keppt um Grettisbikarinn og Kerlinguna.
Um opið mót er að ræða og því  keppa allir aldursflokkar saman.  Upphitun hefst kl. 9:45

Keppnisgreinar í karla og kvenna flokkum eru:

200 m. fjórsund
100 m. bringusund
100 m. skriðsund
100 m. baksund
100 m. flugsund
4 x 50 m. skriðsund (200 m. boðsund)
500 m. skriðsund (Grettissund)

Linda Björk Ólafsdóttir þjálfari tekur á móti skráningum í síma 690-5228 eða á sundæfingum.  Skráningum verður að vera lokið kl. 18.00 16. júní n.k.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir