Heimilisiðnaðarsafnsins opnar annan í Hvítasunnu
Mánudaginn 1. júní annan í Hvítasunnu kl. 14:00 verður opnuð í Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi, samsýning þriggja listakvenna. Sýningin ber heitið "Hring eftir hring" og það eru þær Helga Pálína Brynjólfsdóttir, Kristveig Halldórsdóttir, og Rósa Helgadóttir sem hafa unnið verkin með beinni skírskotun til safngripa í Heimilisiðnaðarsafninu og Halldórustofu.
Einnig verður kynnt ný útgáfa á bókinni VEFNAÐUR á íslenskum heimilum á 19. öld og fyrri hluta 20 aldar sem Halldóra Bjarnadóttir tók saman en Heimilisiðanaðarsafnið gefur nú út í endurbættri útgáfu. Bókin verður til sölu í safninu á sérstöku kynningarverði til og með 17. júní.
Alexandra Chernyshova mun taka lagið - Aðgangur er ókeypis á opnunina og allir hjartanlega velkomnir. Kaffi og kleinur í boði safnsins. Konur sem eiga íslenskan búning eru kvattar til að klæða sig uppá og heimsækja safnið á opnunardaginn.
Heimilisiðnaðarsafnið verður opið alla daga frá 1. júní til 31. ágúst frá kl. 10:00-17:00.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.