145 milljón króna lán til byggingar Árkíls

Meirihluti sveitastjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar lagði til  á síðasta fundi sínum að tekið verði lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf. að fjárhæð 145.000.000 kr.  til 15 ára. Er lánið ætlað til byggingar leikskólans Árkíls.
,Bjarni Jónsson, VG, óskaði eftir því að afgreiðslu lánssamningsins verði frestað þangað til álit óháðs endurskoðanda liggur fyrir. Þá lagði Páll Dagbjartsson einnig til að afgreiðslu málsins yrði frestað.
Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir lagði þá til að málinu yrði vísað til  Byggðarráðs sem fengi heimild til fullnaðarafgreisðlu.  og Byggðarráði gefin heimild til fullnaðarafgreiðslu. Var tillaga Grétu Sjafnar samþykkt með níu atkvæðum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir