Vopni hæstur á sveinsprófi

Ánægðir sveinsprófsnemendur. Vopni er fremstur á myndinni.

Sveinspróf í húsasmíði var haldið í tréiðnadeild Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki í tíunda sinn dagana 15. – 17. maí. Sigurbjörn Vopni Björnsson var hæstur með einkunnina 9,0 sem er jafnframt næst hæsta einkunn í sveinsprófi á Norðurlandi.

Meistari Sigurbjörns er Björn Svavarsson húsasmíðameistari hjá trésmiðjunni Ýr á Sauðárkróki.

Þeir sem þreyttu prófið voru Björn Sindri Eiríksson, Franz Kristjánsson, Jón Stefánsson, Óskar Broddason, Óttar Friðbjörnsson, Sturlaugur  Fannar, Rögnvaldur Egilsson og Sigurbjörn Vopni Björnsson og stóðu þeir sig allir með miklum ágætum og var meðaleinkunn þeirra fyrir verklega hlutann 8,01.

Prófið fólst í því að nemendur smíðuðu snúin stiga.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir