Við stöndum þétt saman! Við snúum bökum saman!
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
08.11.2024
kl. 13.21
Í dag 8. nóvember er formlega settur af stað söfnunardagur fyrir Kristinn Frey Briem sem á fyrir höndum krefjandi verkefni í baráttu sinni við krabbamein.
Kristinn er einn af okkar framlínu mönnum og alltaf reiðubúinn að leggja öðrum lið, segir í auglýsingu frá Hard Wok sem stendur fyrir söfnun fyrir táknrænan Rafrænan hamborgara, þar sem lagt er til að lagðar séu inn 2500 kr.
Okkar besta fólk frá Hard Wok verður í Skagfirðingabúið frá 12:00- 18:00 í dag. Formlegur söfnunardagur er í dag en öllum er frjálst að leggja inn hvenær sem er og að sjálfsögðu má leggja inn lægri eða hærri upphæð, allt hjálpar.
Reiknings upplýsingar - kt. 260399-3149 - 0310-26-003149
Stöndum saman og lokaorðin í auglýsingunni eiga vel við, megi alheimskrafturinn vera með ykkur og biðjum við sértaklega fyrir Kristni.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.