Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst á morgun
Nú eru rúmar þrjár vikur þar til kosið verður til Alþingis. Hér í Norðvesturkjördæmi verða tíu listar á atkvæðaseðlinum. Reiknað var með ellefu framboðum en Græningjum tókst ekki að setja fram lista hér frekar en annars staðar á landinu. Það er næsta víst að það eiga ekki allir heimangegnt á kjörstað 30. nóvember og þurfa því að kjósa utan kjörstaðar. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst fimmtudaginn 7. nóvember.
Í tilkynningu frá Sýslumanninum á Norðurlandi vestra kemur fram að greiða má atkvæði utan kjörfundar á skrifstofum embættisins sem hér segir:
- Blönduósi, aðalskrifstofu, Hnjúkabyggð 33, Blönduósi, virka daga, kl. 09:00 til 15:00
- Sauðárkróki, sýsluskrifstofu, Suðurgötu 1, Sauðárkróki, virka daga, kl. 09:00 til 15:00
Hægt verður að kjósa víðar en á sýsluskrifstofum innan umdæmisins og verða þeir kjörstaðir nánar auglýstir síðar á vefsíðunni www.kosning.is og í héraðsfréttablöðum. Jafnframt verður auglýst sérstaklega þegar nær dregur kjördegi, atkvæðagreiðsla á heilbrigðisstofnunum innan umdæmisins og lengdur opnunartími kjörstaða.
Ábyrgð á atkvæði:
Athygli er vakin á því að kjósandi ber sjálfur ábyrgð á að koma atkvæði til skila, kjósi hann utan kjörfundar hjá kjörstjóra í umdæmi sýslumanns þar sem hann á ekki lögheimili. Nægjanlegt er að koma bréfi með utankjörfundaratkvæði í einhverja kjördeild þess kjördæmis þar sem kjósandinn er á kjörskrá. Kjörstjóri annast póstsendingu atkvæðis að beiðni kjósanda. Allir kjósendur, sem greiða atkvæði utan kjörfundar á kjördag, bera sjálfir ábyrgð á að koma atkvæði sínu til skila.
Kjósendur skulu framvísa persónuskilríkjum við kosninguna (ökuskírteini, vegabréfi eða nafnskírteini). Vakin er athygli á að unnt er að kjósa utan kjörfundar á skrifstofum sýslumanna um land allt.
Ýmsar upplýsingar og eyðublöð vegna komandi kosninga má fá á vefsíðunni www.kosning.is.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.