„Þessi hópur er alveg einstaklega skemmtilegur og skapandi,“ segir Pétur Guðjónsson leikstjóri og höfundur Á frívaktinni
Leikfélag Sauðárkróks fumsýnir á heimsvísu Á frívaktinni, frumsamið leikrit Péturs Guðjónssonar sem leikstýrt hefur hér á Krók bæði hjá LS og Nemendafélagi Fjölbrautaskólans. Titillinn vísar í samnefndan útvarpsþátt sem var mjög vinsæll á sínum tíma á Rás 1 og var óskalagaþáttur fyrir sjómenn. Sjómannalögin eru allsráðandi í verkinu og segir höfundurinn að áhrif þáttarins komi við sögu. Auk þess að semja verkið, leikstýrir Pétur því einnig.
„Hérna er saga sem gæti verið sönn. Saga um vonir og þrár, sorgir og sigra þar sem mannlegur breyskleiki er töluvert sýnilegur. Þessu er svo pakkað inn með gleði og glaum, þar sem þekkt sjómannalög eru í gegnum sýninguna, fyrir utan eitt lag, sem er eftir Elmar Sindra Eiríksson og Brynjar Davíðsson. Það lag fór í sýninguna af því það passaði svo vel inn í með öllum þekktu lögunum,“ segir Pétur um leikritið.
Hugmyndina að verkinu segir Pétur hafa komið þegar hann sat og horfði á þátt Möggu Blöndal og Felix Bergs, Veröld, sem fjallaði um sjómannalögin. „Þá er nú bara eins og elding skjótist í hausinn á mér.“
Þú ákveður að setja þetta upp á Króknum, hvernig kemur það til?
„Það er nú vegna þess að Lulla, formaður LS, greip hugmyndina. Ég á það til að blaðra eða jafnvel hugsa hlutina upphátt þegar ég fæ hugmyndir. Ég var að leikstýra Línu Langsokk hjá LS þegar hugmyndin fæðist. Ég fer því að hlusta á sjómannalög og sjá fyrir mér senur. Síðan ákvað ég að taka að mér leikstjórn að vori 2020 og þá bar ég þessa hugmynd upp á stjórnarfundi og hún var samþykkt. Það var bæði gleðilegt og skelfilegt því sagan var eingöngu á hugmyndastigi og ég ekki búinn að setja niður svo mikið sem eitt orð á blað. En svo kom þetta þegar ég byrjaði.“
Til stóð að sýna verkið síðasta vor en kórónuveiran stöðvaði það. Pétur segir að æfingar hafi rétt verið byrjaðar. „Við vorum byrjuð að rúlla texta án handrits og aðeins farin að kíkja á lögin. Svo kom stopp og ákveðið að fresta fram á haust. Við hittumst a.m.k. einu sinni í sumar. Það þurfti að breyta aðeins hlutverkaskipan fyrir haustið og það var allt klárt. Svo kom aftur frestun. Þá þurfti aftur að breyta töluvert hlutverkaskipan og breyta jafnvel hlutverkum fyrir viðkomandi leikara, breyta um kyn á karakter og ýmislegt annað. Þannig að þetta hefur verið svolítið limbó.“
Hvernig hefur gengið að æfa í vetur?
„Þetta hefur verið algjörlega frábært þó aðstæður væru hræðilegar. Það er kannski það sem gerir þetta frábært, hversu vel hefur gengið við þessar aðstæður. Við höfum verið að æfa með grímur og á tímabili aðeins tíu í húsi með fjarlægðir og sóttvarnir í toppmálum. Þetta hefur verið mjög flókið á köflum en þessi hópur hefur gert þetta mögulegt.
Svo verð ég líka að tala um hversu gaman það er að vinna með svona skapandi fólki. Það er alltaf svolítið hættulegt að leikstýra eigin verki því þá er hætta á bullandi sjálfhverfu. En leikhópurinn hefur verið mjög skapandi og þarna fæðast margar skemmtilegar senur. Ég trúi einlægt á mátt leikhópsins en ekki einræði leikstjórans. Stundum gengur það ekki, það fer svolítið eftir því hversu skapandi hópurinn er. Þessi hópur er alveg einstaklega skemmtilegur og skapandi.“
Frumsýning fer fram eftir Sæluviku, hvernig stendur á því?
„Nú er ég kannski ekki rétti maðurinn til að svara því. Ég held að ákveðið hafi verið að halda tímasetningu á Sæluviku sem við getum ekki fylgt. Þurfum meiri tíma til að æfa leikritið. Held að þetta sé svona. Ég vona bara að allt gangi upp. Á þessum tímapunkti er framtíðin óljós. En hvað sem gerist, þá er ég alveg ofsalega þakklátur að vera í þessu verkefni og vinna með þessu frábæra fólki.“
Meðfylgjandi myndir voru teknar á æfingu sl. laugardag af Gunnhildi Gísladóttur, ljósmyndara.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.