Telja samgönguáætlun 2009 - 2012 óásættanlega

Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar telur óásættanlegan niðurskurð á fjárveitingum til Vegagerðarinnar vegna viðhalds vega, þjónustu og vetrarviðhalds á vegum í Skagafirði, svo sem fram kemur í tillögu til þingsályktunar um fjögurra ára samgönguáætlun fyrir árin 2009–2012.
 
Byggðaráð hefur sent frá sér erindi þar sem fram koma áherslur ráðsins vegna Skagafjarðar og samgönguáætlunar.

 
1. Viðhald vega - mikilvægt að vegum sé haldið vel við, ekki síst malarvegum. Ef viðhald er vanrækt kallar það á meiri kostnað síðar sem komast hefði mátt hjá. Bent er á að viðhaldsverkefni eru mannaflafrek og geta því hjálpað í erfiðu atvinnuástandi í samfélaginu nú um mundir.
 
2. Ljúka framkvæmdum við Strandgötu á Sauðárkróki í framhaldi af Þverárfjallsvegi. Umferðaraukning á þessari leið er mikil og slík að mjög aðkallandi er að ljúka þessu verkefni áður en slys verður í þeim flöskuhálsi sem myndast hefur við aðkomuna inn í þéttbýlið á
Sauðárkróki.
 
3. Flug til Sauðárkróks. Rekstraraðila verði gert kleift að halda áfram þjónustu við Skagafjörð og nágrenni með sama hætti og verið hefur, á gildistíma áætlunarinnar.
 
4. Hvatt er til þess að fylgt verði tillögu svokallaðs "Lágheiðahóps" þegar sett var af stað jarðgangaframkvæmd um Héðinsfjörð á sínum tíma. Hópurinn lagði til að gerður yrði betri sumarvegur um Lágheiði en uppbygging hans virðist ekki á dagskrá í samgönguáætluninni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir