Skagafjörður óskar eftir tilnefningum fyrir Samfélagsverðlaun Skagafjarðar

Árni og Ragnheiður handhafar Samfélagsverðlauna Skagafjarðar árið 2024.
Árni og Ragnheiður handhafar Samfélagsverðlauna Skagafjarðar árið 2024.

Skagafjörður óskar eftir tilnefningum fyrir Samfélagsverðlaun Skagafjarðar, en samfélagsverðlaunin eru veitt árlega einstaklingi, fyrirtæki, stofnun eða félagasamtökum í Skagafirði sem þykja standa sig afburða vel í að efla skagfirskt samfélag, segir á vef sveitarfélagsins. Verðlaun verða veitt á setningu Sæluviku sem verður í Safnahúsinu á Sauðárkróki sunnudaginn 27. apríl nk. Í fyrra hlutu hjónin Árni Björn og Ragnheiður Ásta á Hard Wok verðlaunin en nú er spurning hver verður handhafi þessara verðlauna í ár. 

Tilnefningar eru sendar inn með því að fylla út rafrænt skjal en einnig er í boði að senda tilnefningar á netfangið baldur@skagafjordur.is eða skila skriflega í afgreiðslu Ráðhússins á Sauðárkróki, Skagfirðingabraut 17-21.

Frestur til þess að senda inn tilnefningar er til og með 15. apríl nk. og er hægt að senda inn tilnefningu <Hér>

Eftirtaldir hafa verið sæmdir Samfélagsverðlaunum Skagafjarðar fyrir sinn þátt í að efla skagfirskt samfélag:

2024 - Hjónin Árni Björn Björnsson og Ragnheiður Ásta Jóhannsdóttir

2023 - Rögnvaldur Valbergsson

2022 - Helga Bjarnadóttir

2021 - Stefán R. Gílsason

2020 - Helga Sigurbjörnsdóttir

2019 - Geirmundur Valtýsson

2018 - Hjónin Árni Stefánsson og Herdís Klausen

2017 - Kristmundur Bjarnason

2016 - Stefán Pedersen

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir