Teitur Björn sækist eftir efsta sæti á lista Sjálfstæðisflokks

Teitur Björn. MYND AF VEF ALÞINGIS
Teitur Björn. MYND AF VEF ALÞINGIS

„Ég býð mig fram til að leiða lista Sjálfstæðiflokksins í Norðvesturkjördæmi. Ákvörðun Bjarna Benediktssonar um að leggja til að þing verði rofið og þar með boðað til alþingiskosninga var hárrétt. Kyrrstaða í málum sem eru jafn mikilvæg framtíð þjóðarinnar og raun ber vitni er óásættanleg,“ segir í tilkynningu frá Teiti Birni Einarssyni, öðrum þingmanni Sjálfstæðisflokks í Norðvesturkjördæmi.

Í tilkynningunni segir Teitur jafnframt: „Sjálfstæðisflokkurinn hefur náð verulegum árangri síðustu ár þrátt fyrir krefjandi ríkisstjórnarsamstarf og sögulegar áskoranir og getur því stoltur lagt verk sín í dóm kjósenda. Hins vegar horfum við nú fram á breyttar áskoranir sem snúast fyrst og fremst um framtíðina og hvernig við gerum fólki best kleift að nýta tækifærin til að skapa sér og sínum gott líf um land allt.

Frá því ég tók sæti á Alþingi fyrir einu og hálfu ári síðan hef ég barist fyrir hagsmunum íbúa Norðvesturkjördæmis. Áskoranirnar eru fjölmargar og ólíkar, en ég tel einsýnt að áframhaldandi sókn í atvinnuuppbyggingu sé forsenda aukinnar velferðar og bættra lífskjara fólksins á svæðinu. Það er leiðin fram á við

Ég hef fullan hug á að halda áfram að berjast fyrir bættum hag fólksins í Norðvesturkjördæmi og óska því eftir stuðningi Sjálfstæðismanna í 1. sæti á lista flokksins á kjördæmaráðsþingi næsta sunnudag.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir