Skagafjörður óskar eftir tilboðum í verkið Sorpmóttaka Hofsósi

Séð yfir Hofsós. MYND AF SKAGAFJÖRÐUR.IS
Séð yfir Hofsós. MYND AF SKAGAFJÖRÐUR.IS

Sveitarfélagið Skagafjörður óskar eftir tilboðum í verkið Sorpmóttaka Hofsósi – Jarðvegsskipti og girðing 2025. Opnunardagur tilboða er áætlaður þann 6. mars næstkomandi en verkinu í heild skal lokið 1, júlí 2025.

Í tilkynningu á vef Skagafjarðar segir að um sé að ræða jarðvegsskipti á fyrirhuguðu sorpmóttökusvæði og í vegtengingu að svæðinu, uppgrafið efni flutt á losunarstað, verktaki útvegi burðarhæft efni í fyllingu. Umhverfis svæðið skal setja upp girðingu úr galvanhúðuðum grindum á stálstaurum, sem steyptir eru fastir í hólka í jarðveg. Á girðinguna komi tvö aksturhlið.

Helstu magntölur:
Gröftur: 466 m3
Burðarlag: 628 m3
Grindagirðing: 168 m
Aksturhlið: 2 stk

Verðfyrirspurnargögn eru afhent gjaldfrjálst á rafrænu formi frá og með 19. febrúar 2025. Óska skal eftir gögnum í tölvupósti á netfangið stod@stodehf.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir