Rjúpnaveiðitímabilið að hefjast

Veiðitímabil eru mislöng á milli landshluta, sjá á meðfylgjandi mynd.
Veiðitímabil eru mislöng á milli landshluta, sjá á meðfylgjandi mynd.
Rjúpnaveiðitímabilið hefst þann 25. október 2024 nk. og er veiði heimil föstudaga til þriðjudaga (báðir dagar meðtaldir) innan veiðitímabils. Því er ekki heimilt að veiða miðvikudaga og fimmtudaga.
 

Veiðidagar eru heilir (það má veiða allan daginn). Hafa ber í huga að sala á rjúpu er bönnuð. Upphaf þessa tímabils mætti sennilega flokka sem byrjun á undirbúningi jólanna á einhverjum íslenskum heimilum þar sem Rjúpan er ómissandi partur að jólamatnum. 

Á Facebooksíðu Lögreglunnar á Norðurlandi vestra er minnt er á að enginn má eignast eða nota skotvopn nema að fengnu skotvopnaleyfi. Jafnframt má enginn fara á veiðar nema hafa gilt skotvopnaleyfi og hafa meðferðis gilt veiðikort.
Þá eru skotveiðimenn einnig hvattir til að kynna sér vel aðstæður m.t.t. veðurs og færðar. Þá er einnig mikilvægt að hafa í huga að enginn ætti að fara á fjall nema aðrir séu upplýstir um líklega tímaáætlun og ferðatilhögun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir