Regus opnar á Skagaströnd
„Landvinningar Regus á Íslandi halda áfram – núna er það Skagaströnd, segir í frétt á vef Skagastrandar.“ Skagaströnd er næsti staðurinn á Íslandskortinu hjá alþjóðlegu skrifstofukeðjunni Regus sem stefnir að enn frekari fjölgun starfsstöðva sinna og vinnurýma á Íslandi. Kaup Regus á húsnæði á Skagaströnd að Túnbraut 1-3 er einn liður í því að stækka og þétta netið á Íslandi.
Í fréttinni segir að í húsnæðinu séu nú þegar útibú Landsbankans, afgreiðsla Póstsins, Greiðslustofa Vinnumálastofnunar og skrifstofa Léttitækni ásamt skrifstofum Sveitarfélagsins Skagastrandar.
Sveitarfélagið er spennt fyrir þessari uppbyggingu og býður starfsemi Regus velkomna til Skagastrandar. Með opnun Regus á Skagaströnd skapast ný tækifæri til þess að hýsa mismunandi störf í sveitarfélaginu bæði í opinbera- og einka geiranum. Samhliða aukast einnig atvinnutækifæri þeirra sem vilja búa og starfa á Skagaströnd til skemmri eða lengri tíma. Sá sveigjanleiki sem lausnir Regus hafa upp á að bjóða eru í takt við byggðaáætlun varðandi störf án staðsetningar þannig að búseta hafi ekki áhrif við val á starfsfólki. Til þess að slíkt sé mögulegt þarf að vera til staðar hentugt skrifstofuhúsnæði þar sem önnur starfsemi er fyrir og skapa þessar breytingar því m.a. umgjörð fyrir flutning nýrra starfa og íbúa til Skagastrandar sem er vel, segir Alexandra Jóhannesdóttir, sveitarstjóri.
Tíu árum eftir að Tómas Ragnars, forstjóri og einn af eigendum Regus á Íslandi, opnaði fyrstu starfsstöðina í Reykjavík leigir fyrirtækið nú út tilbúin vinnurými og skrifstofur, til langs eða skemmri tíma, víðsvegar um landið.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.