Ragnhildur vann Skeifukeppni Hólaskóla
Hin árlega Skeifukeppni fór fram á Hólum sl. föstudag. Skeifuhafinn í ár var Ragnhildur Haraldsdóttir. Hin svokallaða Morgunblaðsskeifa er veitt fyrir besta samanlagða árangur í reiðmennskunámskeiðum vetrarins á 1. ári. Ragnhildur fékk einnig reiðmennskuverðlaun FT. Hestur Ragnhildar er Villi frá Hvítanesi.
Í 2. og 3. sæti í skeifukeppninni voru þær Sylvía Sigurbjörnsdóttir á Ísak frá Oddhóli (í miðið) og Ingunn Birna Ingólfsdóttir á Veru frá Kálfholti (til vinstri).
Eiðfaxabikarinn hlaut Sylvía Sigurbjörnsdóttir.
Sylvía fékk einnig viðurkenningar fyrir hæstu aðaleinkunn (9,5) og hæstu einkunn í kennslufræði á leiðbeinendastigi.
Árni Björn Pálsson sigraði úrslit í gæðingafimi á hryssunni Líf frá Möðrufelli.
2. sæti Sylvía Sigurbjörnsdóttir og Ísak frá Oddhóli
3. sæti Ragnhildur Haraldsdóttir og Villi frá Hvítanesi
4. sæti Ingunn Birna Ingólfsdóttir og Vera frá Kálfholti
5. sæti Svana Ingólfsdóttir og Spyrnir frá Grund
6. sæti Daníel Ingi Larsen og Lótus frá Tóftum.
Sigvaldi Lárus Guðmundsson fékk tamningabikar FT fyrir hæstu einkunn (9,2) á 2. ári. Hann er hér ásamt konu sinni Mörtu Gunnarsdóttir og Elísabetu dóttur þeirra.
Sören Agerskov Madsen fékk Morgunblaðshnakkinn fyrir hæstu einkunn (9,1) á 3. ári. Einnig fékk hann Ástundarhestinn fyrir bestan árangur í reiðmennsku og LH-styttuna fyrir hæstu einkunn í reiðkennslu. Sören situr hér Töfra frá Hafragili.
Nýútskrifaðir reiðkennarar og þjálfarar ásamt Eyjólfi yfirreiðkennara (t.v.), Þórarni reiðkennara og Víkingi deildarstjóra.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.