Opið bréf til heilbrigðisráðherra, Álfheiðar Ingadóttur
Sæl Álfheiður. Nú eru liðnir 3mánuðir síðan hópur fólks mætti fyrir framan Heilbrigðisstofnunina á Blönduósi, til að mótmæla þeim mikla niðurskurði sem lagður var á stofnunina.
Það virðist kannski ekki vera svo langt síðan, en svo er nú engau að síður raunin Álfheiður, tíminn líður hratt og mörgu er að sinna, en þó þú kunnir að vera búin að gleyma, þá höfum við engu gleymt!
Við munum ennþá eftir því loforði sem þú gafst okkur fyrir framan Heilbrigðisstofnunina fyrir framan fjölda fólks, þess efnis að yfir þetta mál yrði farið og kallaðir yrðu til þingmenn kjördæmisins og framkvæmdastjórinn og í sameiningu farið yfir þessi mál. Við vitum að þessi fundur var haldin en ekkert hefur gerst.
Þann 17. mars síðastliðinn sendum við þér og ráðuneyti þínu fyrirspurn og óskuðum eftir upplýsingum um hvernig gengi. Sennilega gengur ekki neitt, því engin eru svörin, eða hvað á maður að halda? Við þetta verður ekki búið, nú viljum við fá svör Álfheiður, svona vinnubrögð geta ekki talist ásættanleg, eða hvað? Nú verður þú að sýna í verki að þú hunsir ekki óskir okkar og að við séum þess verð að á okkur sé hlustað.
Við munum láta rödd okkar heyrast og höldum áfram að mótmæla, því annars gerist ekkert, en eins og þú hefur bent á; Það Virkar!!!! Að lokum skorum við á þingmenn að gleyma sér ekki, sinna því sem þeim ber fyrir sitt kjördæmi og fylgja þessu máli eftir af fullum þunga.
LÁTUM RÖDD OKKAR HEYRAST!
- Baráttukveðja
- Bóthildur Halldórsdóttir
- Einar Óli Fossdal
- Margrét Hólmsteinsdóttir
- Anna Kr. Davíðsdóttir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.