Ók inn í Samlagið
feykir.is
Skagafjörður
12.05.2010
kl. 13.45
Jeppabifreið rann stjórnlaus inn í nýbyggingu Mjólkursamlagsins á Sauðárkróki nú í hádeginu þar sem kaffaðstaða starfsmanna er. Talið er að ökumaður hafi fengið aðsvif.
Ökumaður var á leið frá N1 þegar bifreiðin verður stjórnlaus og stefndi yfir bílaplan Skagfirðingarbúðar með fyrrgreindum afleiðingum. Starfsmenn voru að matast þegar ósköpin dundu yfir og lenti einn þeirra fyrir bílnum. Það vildi honum til happs að bíllinn stöðvaðist á súlu sem ber bygginguna uppi og slasaðist maðurinn lítið. Var hann fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar. Samkvæmt heimildum Feykis er ökumaður kominn til meðvitundar lítt slasaður.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.