LH hundsar fund fulltrúa 26 hestamannafélaga
Fulltrúar hestamannafélaganna Geysi, Léttfeta, Sindra og Stíganda áttu pantaðan fund með Haraldi Þórarinssyni formanni Landssambands hestamannafélaga (LH) föstudaginn 5. mars varðandi Landsmót hestamanna 2012. Ætluðu fyrir hönd 26 hestamannafélaga að mótmæla hvernig staðið væri að ákvörðun landsmótsstaðar 2012.
Samkvæmt heimildum Feykis.is afboðar Haraldur fundinn um miðnætti fyrir fundardag á þeim forsendum að hann sé upptekinn og nái ekki að boða stjórnarmenn til fundarins. En daginn eftir eða sama dag og fundurinn átti að vera birtist frétt um að komið hafi verið á fundi milli LH og Fáks þar sem undirritaður var samningur um Landsmót í Reykjavík 2012.
-Við furðum okkur á vinnubrögðum formanns LH og teljum þau ólýðræðisleg og ekki unnin af heilindum. Ljóst er að geysileg andstaða ríkir meðal hestamanna um val á Reykjavík sem Landsmótsstað 2012, segir í yfirlýsingu frá fulltrúahópnum.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.