Landbúnaður laðar og lokka
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
10.03.2010
kl. 08.48
Þriðjudaginn 16. mars verður haldið málþing um landbúnaðartengda ferðaþjónustu í háskólanum á Hólum í Hjaltadal á vegum Hólaskóla og Vaxtarsamnings Norðurlands vestra.
Haldin verða athyglisverð erindi sem fjalla um landbúnað og ferðaþjónustu frá ýmsum sjónahornum. Einnig gefst áhugsömum gestum tækifæri til að taka þátt í hugmyndasmiðju um eflingu á landbúnaðartengdri ferðaþjónustu.
Dagskrá:
- 13.00 Hlín C. Mainka Jóhannesdóttir fjallar um landbúnaðartengda ferðaþjónustu
- 13.30 Berglind Viktorsdóttir frá Ferðaþjónusta bænda: Horft til framtíðar með tengingu við fortíðina!
- 14.00 Stutt hlé
- 14.15 Berglind Hilmarsdóttir kynnir „Opinn landbúnað“ - Verkefni á vegum Bændasamtakanna
- 14.45 Hlédís Sveinsdóttir frumkvöðull fjallar um tækifæri í íslenskum landbúnaði
- 15.15 Kaffihlé
- 15.30 Vinnusmiðjur: 3 -4 hópar safna saman hugmyndum um nýsköpun í landbúnaðartengdri ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra og vinna svo að áætlun hvernig hrinda mætti þessum hugmyndum í framkvæmd.
- 16.30 Kaffi og kynning á hugmyndum og áætlunum
Allir velkomnir !
Aðgangur ókeypis
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.