Kvöldopnun á Aðalgötunni í kvöld

Í kvöld verður árlega kvöldopnun hjá fyrirtækjunum á Aðalgötunni á Sauðárkróki og óhætt að segja að það verður margt spennandi í boði.

Sauðárkróksbakarí verður með opið og ætlar að selja Pizzur frá kl 18.00 til 22.00

Hjá Ernu hárgreiðslustofa verður með tilboð á völdum vörum og ætlar að bjóða upp á aðstoð við notkun hitajárna

Táin og Strata verða með 20 - 50 % afslátt af fötum og 20 % afslátt af Ilmvötnum - Töskum og klútum

Ólína og Helga eru að fara opna verslunina sína og verða með 15% afsl. af völdum vörum og 50% afslátt af vörum sem hætta.

Eden snyrti og fótaaðgerðastofa verða með 20 - 50 % afslátt af öllum vörum. Opið 18 – 22 og veglegur kaupauki fyrir fyrstu 10 sem versla fyrir 15 þúsund eða meir. Kennsla og ásetning fyrir þær sem vilja á vinsælu Quick lash augnhárunum sem endast upp í 14 daga. Kampavín, drykki & konfekt.

Capello verður með 15-30 % afslátt

Grandinn verður með með tilboð á bjór á krana og sérvaldum kokteilum.

Í Gránu verður Hilma með pop-up, Brá fataverslun verður með pop-up og Tónadans verða með skemmtiatriði. Eldhúsið opið. Hamingjustund á barnum og ostaplattar á tilboði.Grána Bistró og Gránubúð opin 10-22 þennan dag.

Það er óhætt að segja að það verður nóg um að vera á Aðalgötunni í kvöld og spennandi að taka rölt í bæinn. 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir