Kvennatölt Norðurlands 2010
feykir.is
Skagafjörður, Hestar
08.04.2010
kl. 09.01
Um síðustu helgi var haldin töltkeppni í reiðhöllinni á Króknum þar sem eingöngu konur höfðu þátttökurétt. Tóku þær þessu framtaki vel og fjölmenntu á brautina.
Mikil þátttaka var meðal kvenna en alls 15 konur kepptu í flokki „meira vanar“ en heldur fleiri í flokknum „minna vanar“ en alls 24 konur skráðu sig þar. Kvöldið tókst í alla staði vel og verður líklega fastur punktur í vetrarstarfi Reiðhallarinnar í framtíðinni.
Í flokki þeirra meira vönu urðu úrslit eftirfarandi:
B-úrslit
- 5. Sonja Líndal Þórisdóttir 6,61
- 6. Anna Rebekk Wohlert 6,33
- 7. Kolbrún Þórólfsdóttir 5,94
- 8. Guðrún Hanna Kristjánsdóttir 5,56
- 9. Hrefna Hafsteinsdóttir 5,56
A-úrslit
- 1. Heiðrún Ósk Eymundsdóttir 7,11
- 2. Oddný Lára Guðnadóttir 7,00
- 3. Ásdís Ósk Elvarsdóttir 6,72
- 4. Sonja 6,50
- 5. Hallfríður S Óladóttir 6,44
Í flokknum „minna vanar“ urðu úrslit eftirfarandi:
B-úrslit
- Álfhildur Leifsdóttir 6,33
- Sina Scholz 6,00
- Sædís Bylgja Jónsdóttir 6,00
- Rína Einarsdóttir 5,61
- Hafrún Ýr Halldórsdóttir 5,17
A-úrslit
- 1. Svala Guðmundsdóttir 6,39
- 2. Sigríður Fjóla Viktorsdóttir 6,39
- 3. Rósa María Vésteinsdóttir 6,28
- 4. Álfhildur Leifsdóttir 6,22
- 5. Vigdís Gunnarsdóttir 6,11
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.