Jón skipar vinnuhóp

Jón Bjarnason ráðherra

Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur ákveðið að skipa vinnuhóp til þess að endurskoða núverandi jarða- og ábúðarlög vegna þeirrar stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar að hún mun standa vörð um innlendan landbúnað og tryggja fæðu- og matvælaöryggi þjóðarinnar.

„Jarða- og ábúðarmál eru nátengd yfirlýstum markmiðum um fæðuöryggi þjóðarinnar. Meginstefnan hlýtur að felast í að halda utan um og vernda núverandi og framtíðar landnæði sem til matvælaframleiðslu er fallið og skapa jafnframt sem best skilyrði í hinum dreifðu byggðum,“ segir í yfirlýsingu frá ráðuneytinu.

Í vinnuhópnum eru alþingismennirnir Atli Gíslason og Ásmundur Einar Daðason og frá Bændasamtökum Íslands Jóhannes Sigfússon bóndi á Gunnarsstöðum, Eiríkur Blöndal framkvæmdastjóri og Erna Bjarnadóttir sviðsstjóri.

Með vinnuhópnum munu starfa Sigurður Þráinsson skrifstofustjóri og Arnór Snæbjörnsson lögfræðingur í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti.

Á vegum ráðuneytisins er að vænta niðurstöðu nefndar sem fjallar um nýtingu landbúnaðarlands sérstaklega og mun niðurstaða þeirrar nefndar nýtast í framhaldinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir