Bjarni Jónsson segir skilið við VG

Í yfirlýsingu á Facebook hefur Bjarni Jónsson, oddviti Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi, lýst því yfir að hann hafi ákveðið að segja sig úr VG og segja skilið við þingflokkinn. „Flestum hefur lengi verið ljóst að flokkurinn hefur sveigt af leið og brugðist grunngildum sínum og væntingum þeirra sem stóðu að stofnun hans. Hann hefur brugðist mörgu því fólki sem hefur stutt hann,“ segir Bjarni í yfirlýsingunni.

„Á síðustu vikum og mánuðum hef ég styrkts í þeirri trú að ég eigi ekki samleið með VG, þar sé ekki farvegur fyrir hugsjónir og mörg þau brýnustu mál sem ég hef barist fyrir og var kosinn til og ljóst að veran í VG hefur ekki síst orðið æ þungbærari vegferð fyrir fólk með landsbyggðarhjarta.

Þessi ákvörðun hefur í huga mínum legið fyrir í nokkurn tíma en ég kaus að bíða með þangað til búið væri að rjúfa þing og ákveða kjördag,“ segir Bjarni að lokum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir