Arna Lára vill leiða lista Samfylkingarinnar
Arna Lára Jónsdóttir, bæjarstjóri Ísafjarðar, hefur ákveðið að gefa kost á sér til þess að leiða lista Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi en BB.is segir í frétt að Arna Lára hafi undanfarna daga verið sterklega orðuð við framboð fyrir Samfylkinguna.
Í tilkynningu frá Örnu Láru segir: „Ég hef ákveðið að gefa kost á mér til að leiða lista Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi í komandi alþingiskosningum. Ég hef verið lengi virk í Samfylkingu og verið hluti af forystu flokksins síðustu ár. Saman höfum við breytt Samfylkingunni og fært hana nær fólkinu í landinu. En nú er kominn tími á breytingar við stjórn landsins. Við erum til þjónustu reiðubúin, fáum við til þess traust hjá þjóðinni, og ég vil mitt af mörkum á Alþingi.
Ég er sannfærð um að löng reynsla mín af sveitarstjórnarmálum yrði afar gagnleg á vettvangi landsmálanna – en ég bý einnig yfir mikilli reynslu úr atvinnulífinu og af nýsköpunarmálum. Norðvesturkjördæmi þarf á öflugum talsmanni að halda sem þekkir vel til kjördæmisins og innviða þess. Við stöndum frammi fyrir fjölmörgum áskorunum og fólk gerir kröfu um árangur.
Ég mun leggja mig alla fram ásamt öflugri Samfylkingu. Við eru með skýrt plan og höfum einbeittan vilja til verklegra framkvæmda, sem ekki er vanþörf á. Vonandi fæ ég ykkar stuðning til góðra verka!“
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.