Heilbrigðisstofnun Norðurlands 10 ára í dag

Jón Helgi Björnsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands.MYND AÐSEND
Jón Helgi Björnsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands.MYND AÐSEND

Heilbrigðisstofnun Norðurlands, HSN á 10 ára starfsafmæli í dag, en stofnunin varð til við sameiningu Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga, Heilsugæslunnar á Akureyri, Heilsugæslustöðvarinnar á Dalvík, Heilbrigðisstofnunar Fjallabyggðar, Heilbrigðisstofnunar Sauðárkróks og Heilbrigðisstofnunar Blönduóss, þann 1. október 2014.

Sameiningin hefur leitt til jákvæðra breytinga og hagræðingar hvað varðar aukna samvinnu og fagleg samskipti á milli heilbrigðisstofnana á Norðurlandi. Mun auðveldara er að halda úti öflugri upplýsingatækni sem er í rauninni forsenda þess að vinna vel saman yfir stórt landsvæði. Þá fylgdi sameiningunni veruleg samlegð í símenntun starfsfólks sem jók mjög á möguleika á samstarfi og öflugri endurmenntun sem hefur leitt til nýrra og uppbyggilegra verkefna á heilbrigðissviði.

HSN sinnir stóru landsvæði allt frá Blönduósi í vestri til Þórshafnar í austri sem telur um 38.000 íbúa, en stofnunin rekur 18 aðskildar starfseiningar í um 40.000 fermetrum af húsnæði. Þetta er stór vinnustaður, en hjá okkur starfa 625 starfsmenn í 455 stöðugildum. Hér eru 120 hjúkrunarfræðingar, 95 sjúkraliðar og 55 læknar í 45 stöðugildum. Þá eru ótalin störf ómissandi aðila í sálfélagsþjónustu, iðju- og sjúkraþjálfun og aðhlynningu, auk starfa þeirra sem sinna stoðþjónustu af ýmsum toga. Í dag eru 12-13 læknar í sérnámi í heimilislækningum hjá HSN og við tökum við nokkrum fjölda nema í lengra eða styttra starfsnám á hverju ári.

HSN á að jafnaði í um 1000 samskiptum við íbúa Norðurlands á hverjum degi og starfsfólk í heimahjúkrun skráir t.a.m. um 80.000 samskipti við þjónustuþega á hverju ári. Búast má við að læknar stofnunarinnar fari í 2-3 bráðaútköll með sjúkrabíl á hverjum degi, en á starfssvæðinu eru tíu læknar alltaf á bundinni vakt til að bregðast við slysum eða veikindum íbúa. Þegar alvarlegt slys varð í Öxnadal í sumar mættu 8 læknar og 5 hjúkrunarfræðingar frá HSN á slysstað frá þremur starfsstöðvum.

Hlutverk HSN er víðtækt í samfélaginu. Við höldum utan um alla almenna þjónustuþætti í heilsugæslu með móttöku og vaktþjónustu heilsugæslulækna, heimahjúkrun, hjúkrunarmóttöku, ungbarna- og mæðravernd, heilsuvernd grunnskólabarna, hjúkrun í framhaldsskólum og sálfélagslegri þjónustu fullorðinna og barna, auk fleiri þátta. Einnig rekum við fjöldann allan af hjúkrunar- og sjúkrarýmum á starfssvæðinu.

Við erum stolt af því að hafa fengið að taka þátt í því að leiða ný og spennandi verkefni en nýlegasta dæmið er þegar stofnunin skrifaði undir samstarfssamning við Sjúkrahúsið á Akureyri og heilbrigðisráðuneytið um starfsemi Akureyrarklíníkurinnar sem veita á ME sjúklingum þjónustu á landsvísu. Þá tók HSN einnig við verkefnum geðheilsuteymis barna á Norðurlandi og Austurlandi, en teymið var styrkt með nýju og öflugu fagfólki. Tekur teymið til starfa í dag á 10 ára afmæli HSN.

Almennt hefur Heilbrigðisstofnun Norðurlands notið velvilja stjórnvalda í þessi 10 ár og fengið auknar fjárheimildir til að auka og bæta þjónustu. Sérstaklega má nefna fjölgun starfsfólks á Akureyri þar sem staða heilsugæslunnar þar var afskaplega veik fyrir 10 árum. Stofnunin hefur rekið aðhaldssama stefnu í fjármálum og hefur rekstur hennar að jafnaði verið í jafnvægi.

Heilbrigðisstofnun Norðurlands er lykilstofnun í samfélaginu. Hún hefur þann megintilgang að skapa góðan ramma utan um gott starfsfólk, hvers hlutverk er svo að veita íbúum öfluga heilbrigðisþjónustu sem stuðlar að vellíðan og heilbrigði þeirra. Við munum halda áfram að rækja okkar mikilvæga hlutverk af natni, fagmennsku og virðingu.

Innilega til hamingju með daginn, allt starfsfólk HSN og íbúar á Norðurlandi vestra og eystra.

Jón Helgi Björnsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir