Fish Partner tekur við Blöndu og Svartá
Í frétt á mbl.is segir að félagið Fish Partner hefur samið við Veiðifélag Blöndu og Svartár um að taka að sér sölu á veiðileyfum á vatnasvæðinu næstu fimm árin. Um er að ræða umboðssölu fyrirkomulag en fram til þessa hafa leigutakar greitt fast leiguverð fyrir ána. Þetta fyrirkomulag hefur verið tekið upp víðar og eru Norðurá í Borgarfirði og Ytri Rangá dæmi um laxveiðiár þar sem slíkt fyrirkomulag hefur reynst vel.
Aðalfundur Veiðifélags Blöndu og Svartár samþykkti í vor að óska eftir tilboðum í vatnasvæðið. Í framhaldi af því var birt auglýsing og óskað eftir tilboðum. Fjórir aðilar buðu og eftir viðræður við tilboðsgjafa náðist samningur við Fish Partner.
Félagsfundur í félaginu var svo haldinn í félagsheimilinu á Blönduósi í gærkvöldi og þar lagður fyrir fundinn samningur sem stjórn hafði samþykkt með fyrirvara um afstöðu félagsfundar. Guðmundur Rúnar Halldórsson bóndi í Finnstungu og formaður Veiðifélagsins staðfesti í samtali við Sporðaköst að samningurinn hefði verið samþykktur með öllum greiddum atkvæðum og enginn verið á móti.
Samningurinn við Fish Partner gerir ráð fyrir því að sleppiskylda verði á öllum laxi á svæðinu, meðal annars í ljósi minnkandi laxgengdar í Blöndu. Eingöngu verður veitt á flugu. Veiðihúsið leigir Fish Partner allt árið.
Stefnt er að því að bæta við nýju svæði í Blöndu en það er ósaveiði neðst í ánni. Verða þar tvær stangir.
Guðmundur Rúnar Halldórsson, formaður segist í samtali við mbl.is ánægður með samninginn og væntir þess að vegur Blöndu og Svartár eflist á næstu árum. Hann staðfesti að nokkrir af góðkunningjum Blöndu hefðu þegar staðfest kaup á veiðileyfum næsta ár og þótti honum það góðs viti.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.