Húnaþing vestra þátttakandi í verkefninu Gott að eldast
Á heimasíðu Húnaþings vestra er skýrt frá því með gleði að umsókn þeirra um að vera þátttakandi í þróunarverkefninu Gott að eldast hafi hlotið brautargeng. Verkefnið gengur út á að samþætta félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk í heimahúsum. Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið auglýstu í sumar eftir slíku samstarfi við sveitarfélög og heilbrigðisstofnanir. Áhugi fyrir þátttöku var mikill og hvorki fleiri né færri en 19 umsóknir bárust en sex urðu fyrir valinu. Alls taka 22 sveitarfélög þátt í verkefninu með sex heilbrigðisstofnunum en umsókn Húnaþings vestra var í samvinnu við Heilbrigðisstofnun Vesturlands.
Þróunarverkefnin eru hluti af aðgerðaáætluninni Gott að eldast en með henni taka stjórnvöld utan um þjónustu við eldra fólk með nýjum hætti. Markmið þróunarverkefnanna er að finna góðar lausnir á samþættingu félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk og flétta vandlega saman þá þætti sem ríkið sér annars vegar um og hins vegar sveitarfélögin.
Auk þróunarverkefnanna verður undir merkjum Gott að eldast ráðist í aðgerðir sem hverfast um heilbrigða öldrun með alhliða heilsueflingu, sveigjanlega þjónustu og stórbættan aðgang að ráðgjöf og upplýsingum um þjónustu fyrir eldra fólk.
Allar aðgerðir miða að því að tryggja eldra fólki þjónustu sem stuðlar að því að sem flest þeirra séu þátttakendur í samfélaginu – sem allra lengst og á þeirra eigin forsendum.
Þau svæði sem valin voru til þáttöku eru:
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) og sveitarfélögin Fjarðabyggð og Múlaþing
Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) og annars vegar sveitarfélagið Árborg og hins vegar Hveragerðisbær
Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE) og annars vegar Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (tíu sveitarfélög) og hins vegar sveitarfélagið Húnaþing vestra
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðis (HH) og sveitarfélagið Mosfellsbær
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða (HVEST) og sveitarfélögin Bolungarvíkurkaupsstaður, Ísafjarðarbær, Súðavíkurhreppur, Tálknafjarðarhreppur og Vesturbyggð
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) og sveitarfélagið Dalvíkurbyggð
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.