VALDÍS gefur út lagið Let‘s Get Lost Tonight

VALDÍS gaf út nýtt lag núna á miðnætti sem nefnist Let‘s Get Lost Tonight. Sumarlegur danssmellur með 80‘s popp pródúseringu.

VALDÍS er 23 ára söngkona frá Sauðárkróki og byrjaði að gefa út sitt eigið efni vorið 2020. Lögin hennar hafa komist í spilun og á vinsældarlista á helstu útvarpsstöðvum landsins, meðal annars lögin Piece Of You og Breathe

Valdís mun stíga á svið í skemmtitjaldinu á Unglingalandsmótinu á Sauðárkróki um helgina og hvetjum við alla til að mæta og fylgjast með þessari hæfileikaríku söngkonu.

/SMH

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir