Saga fyrsta körfuboltaliðs Tindastóls komin á bók
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir, Lokað efni
16.11.2024
kl. 13.11
Lið Tindastóls sem lék á Húsafellshátíðinni 1968 eftir sigurleik gegn Skallagrími. Á myndinni sést Pálmi Sighvatz halda á fyrsta bikar í sögu körfuknattleiksdeildar Tindastóls. Á myndinni eru í efri röð frá vinstri: Ólafur Helgi Jóhannsson, Sveinn Sigfússon, Kári Steindórsson og Þórarinn Guðmundsson. Í neðri röð frá vinstri: Óli Jón Gunnarsson, Pálmi Sighvatz og Björn Ottósson. MYND: INGVAR SIGHVATS
Nú á allra næstu dögum kemur út bókin Saga körfuboltans á Sauðárkróki 1964-1971 en höfundur verksins er Ágúst Ingi Ágústsson sagnfræðingur, Króksari og kennari við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Hann er einnig útgefandi bókarinnar. Eins og margur Skagfirðingurinn er Ágúst Ingi, sem er sonur Gústa Munda og Önnu Hjartar, illa haldinn af körfuboltabakteríunni og er áhuginn djúpur og víðfemur. Feykir lagði nokkrar spurningar fyrir Ágúst Inga en hann segir m.a. að með bókaútgáfunni hafi honum tekist að sameina menntun sína og helsta áhugamál; sagnfræðina og körfuboltann.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.