Ný stjórn Flugbjörgunarsveitarinnar í Varmahlíð
feykir.is
Skagafjörður, Mannlíf
10.04.2024
kl. 12.05
Nýja stjórnin. Frá vinstri: Tóbías, Gestur, Þorsteinn, Skarphéðinn, Einar Óla, Tobba og Guðmundur. MYND AF SÍÐU FLUGBJÖRGUNARSVEIARINNAR
Flugbjörgunarsveitin í Varmahlíð hélt aðalfund í gær og segir í tilkynningu á Facebook-síðu sveitarinnar að góð mæting hafi verið á fundinn og félagar sammála um að reksturinn gangi vel og tækifæri séu fyrir sveitina til að halda áfram að vaxa og dafna.
Á fundinum var ný stjórn kjörin og var Einar Ólason kosinn formaður en með honum í stjórn eru Þorsteinn Guðmundsson, Skarphéðinn Kristinn, Gestur Már og Þorbjörg Jóna. Varamenn eru Tobías Freyr og Guðmundur Guðmundsson.
Fram kemur í tilkynningunni að félagar í Flugbjörgunarsveitinni í Varmahlíð hlakki mikið til að takast á við komandi verkefni.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.