Byggðarráð leggur til að auka skrifstofurými í Skagafirði
Á fundi byggðarráðs Skagafjarðar, 12. júlí sl., lagði meirihluti byggðarráðs það til að sveitarstjóra verði falið að gera tillögu að stofnun fasteigna- og rekstrarfélags með aðkomu fleiri aðila, sem myndi hafa það að markmiði að auka skrifstofurými í Skagafirði.
Greinargerð tengd tillögunni, sem Einar E. Einarsson og Sólborg S. Borgarsdóttir leggja fram er svo hljóðandi:
„Einn liðurinn í að fjölga opinberum störfum í Skagafirði er að í boði sé nægt skrifstofurými til að taka við auknum verkefnum sem krefjast slíkrar aðstöðu, en fyrir liggur að skortur er á slíkri aðstöðu í dag. Rekstur skrifstofuhótela telst ekki til kjarnastarfsemi sveitarfélaga og því nauðsynlegt að fá utanaðkomandi fjárfesta að stofnun og rekstri félagsins sem ætlað er að reki sig svo með sjálfstæðum hætti.“
Tillagan var samþykkt í byggðarráði.
/SMH
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.