Atvinnulífssýningin um helgina

Frá Atvinnulífssýningunni 2014 Mynd: skagafjordur.is
Frá Atvinnulífssýningunni 2014 Mynd: skagafjordur.is

Atvinnulífssýningin verður sett í íþróttahúsinu á Sauðárkróki laugardaginn 20. maí kl. 11. Sýningin stendur yfir laugardag og sunnudag og verður opin frá kl. 10-17 á laugardag og 10-16 á sunnudag.

Á sýningartíma verður fjölbreytt dagskrá á sviði með tónlist og ýmsum uppákomum en atriðin verða kynnt nánar á sýningunni. Atvinnulífssýningin í ár er fjórða sinnar tegundar í Skagafirði og var síðast haldin árið 2018. Þátttaka á sýninguna er mjög góð en yfir 60 sýnendur eru skráðir á sýninguna sem verður bæði á inni- og útisvæði.

Sýningunni er ætlað að varpa ljósi á þann fjölbreytileika sem er í þjónustu, framleiðslu, mannlífi og menningu í Skagafirði, kynna sprota og nýsköpun í atvinnulífi og síðast en ekki síst skapa skemmtilegan viðburð fyrir heimafólk og gesti.

Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir